Kennitala 661082-0469 - Snorrabraut 58 - 105 Reykjavík - sími: 4149500 - fax: 4149501 - netfang: droplaugarstadir@droplaugarstadir.is

 



Aðstandendafélag

Ábendingar

Droplaugarstaðir

Fréttir - Á döfinni

Hjúkrunardeildir

Hlekkir

Hvað viltu vita

Matseðlar

Myndir

Starfsáætlun

Starfsfólk

Um okkur

Umsóknir

Þjónusta

 

 

 


Droplaugarstaðir eru í eigu Reykjavíkurborgar.
Forstöðumaður Droplaugarstaða er Ingibjörg Bernhöft, hjúkrunarfræðingur.

Í janúar 1979 var lögð fram byggingarforsögn og um haustið sama ár hófust framkvæmdir við byggingu Droplaugarstaða.
Í upphafi var gert ráð fyrir dvalarheimili fyrir aldraða, en í febrúar 1981 var ákveðið að gera þriðju hæðina að hjúkrunardeild.  Vistdeild var opnuð 30. júní 1982 fyrir 36 manns og hjúkrunardeild þann 1. október sama ár, fyrir 32 einstaklinga.
Heimsendur matur var í fyrstu frá eldhúsinu og kostgangarar borðuðu á Droplaugarstöðum, verslun var einnig starfandi á heimilinu,  en þetta lagðist af þann 1. janúar 1996.  Þennan sama dag voru Droplaugarstaðir gerðir að hjúkrunarheimili.
Fótsnyrting var í byrjun á vegum heimilisins en varð síðan einkarekin árið 1998.  Hárgreiðsla var einnig á vegum heimilisins allt til ársins 1999 að hún varð einkarekin.
Sjúkraþjálfari hefur verið hér frá upphafi.  Félagsstarf var hér í upphafi en í desember 2001 tók iðjuþjálfun við því starfi.

Margar götur í nágrenni Droplaugarstaða eru nefndar eftir hetjum Íslendingasagna, má þar sem dæmi nefna Njálsgötu og Bergþórugötu.
Fyrir tíð Droplaugarstaða var hér stígur sem kallaðist Droplaugarstígur og var heimilinu gefið nafn eftir honum.  Stígurinn var hins vegar nefndur eftir Droplaugu, móður Droplaugarsona, Helga og Gríms, í
samnefndri Íslendingasögu.


Þessi síða hefur verið heimsótt 1614048 sinnum.